Aftur "heim"

Ég hef ákveðið að fllytja aftur "heim". Búinn að færa bloggið mitt aftur á www.blog.central.is/dassinn

Munið að breyta slóðinni á tenglinum ykkar ;)

Dassi


O happy day

Fyrsta bloggið mitt úr nýju sætu fartölvunni minni :) Djöfull er geggjað að getað farið í tölvuna sína hvar sem er en ég legg samt til að netið verði aðgengilegt hvar sem er ;)

Það er orðið helvíti langt síðan að ég minntist á diskinn okkar, Rock Machine með Red Motor Dog, þannig að þið þarna úti sem ekki eruð búin að tryggja ykkur eintak skulið fara að gera það áður en ég verð vitlaus!!! Be a pal...

Áfram Liverpool í kvöld svo... Farið nú að geta eitthvað! Benitez, ég tek af þér starfið ef þú ferð ekki að gera eitthvað af viti!!!

Davíð og nýja tölvan hans "Þráinn" biðja að heilsa
Good day


Ný tölva

siemensÉg hoppaði útí búð um daginn og fjárfesti í nýrri laptop tölvu. Fékk hana á 129.000 þús og lét svo plata á mig einhverri aukatryggingu þannig að þetta kostaði mig 149.000 þús. Það góða við þessa aukatryggingu er það að ég get notað tölvuna í segjum keilu, golf, fótbolta, tennis og ýmsa skemmtilega leiki, því ef hún skemmist þá fæ ég bara nýja :) En það er eitt sem böggar mig þó aðallega af því að ég keypti þessa ákveðnu tölvu af því að batteríið á henni á að endast tvöfalt lengur en á öllum hinum Fujitsu Siemens vélunum en NEI!!! Átti að duga í 4 tíma en núna er batteríið nánast fullt(98%) og það eru 3 klst og 2 mínútur eftir! Það vantar 1/4 af batteríinu sem ég hélt ég hefði keypt. Þannig að á morgun, eða í dag ef ég kemst, þá ætla ég að fara niður eftir og henda batteríinu í andlitið á einhverjum og heimta nýtt!!! Þetta er svo ógeðslega týpískt hjá svona kompaníi að bulla eitthvað í manni að það hálfa væri nóg. Af hverju auglýsa þeir ekki frekar að batteríið dugi í 2,5 klst og þá verður fólk súper ánægt þegar það kemst að því að helvítis djöfulsins batteríið dugar miklu lengur? ;) Góð hugmynd hehe, ég er auðvitað genious

Í dag eru 10 dagar þangað til að ég fer í golf til Korfu í Grikklandi :) Snilld að komast í burtu úr þessum skítakulda í smá tíma. Svo er það að sjálfsögðu Florida um jólin með Írisi ;) Ég nenni ekki að skrifa meira af því að ég er svo pissed útaf þessu batteríi :( Blessuð

Deivid


Vote for me

Jæja, blessað verði fólkið...

Núna erum við bara staddir í 5 sæti á vinsældarlistanum á www.rokk.is Hlæjandi Endilega komið okkur ofar með því einu að hlusta eða downloada laginu "The Desert Riders". Leggjum öll okkar að mörkum í baráttunni Koss hehe...

Annars er það að frétta að ég ætlaði að kaupa mér laptop tölvu áðan og var búinn að finna mér þessa fínu tölvu orðinn úber spenntur að fara að leika mér í henni en NEI, þetta var síðasta tölvan í búðinni en hann var svo góður að hann ætlaði að selja mér sýnis eintakið á góðum kjörum. Ok, ég bíð og bíð já og bíð eftir að afgreiðslumaðurinn finni batteríið í helv... vélina. Getiði nú, hann fann það ekki og ég þurfti að fara heim með sárt ennið með enga tölvu í farteskinum Fýldur

Glataður útataður pakki...

Until l-8-er, your dearest.... The Dee


Rokkpunktur

Ég er byrjaður á nýjum Rokkpunkti þannig að ég var að spá í það hvort menn væru ekki til í hann næstu helgi??? Siggi, Stebbi, Freyr, Helgi, Þórður, Gulli, Palli, Raggi, Geiri???

Skráið ykkur í hér

Red Motor Dog - Rock MachineRMDcover3


Reminder...

RMDcover3.

Hlustið á nýtt lag á Myspace-inu okkar

Hér geturu hlustað á lagið Mighty Maybe af disknum okkar Rock Machine

MYSPACE.COM/REDMOTORDOG


Rock Machine

 

RMDcover3
Loksins þá er platan "Rock Machine" komin út. Þú getur keypt hann af mér persónulega á 1499 kr og sannir vinir gera það ;)

Dassinn


Eitthvað fokk í gangi

Halló. Ég hef verið að reyna að blogga uppá síðkastið en það virðist ekki ætla að ganga upp. Tölvu helvítið er eitthvað að klikka greinilega. Ég mun reyna mitt besta að ná einu bloggi núna sem fyrst en þessi skrif eru skrifuð í tölvunni hennar Írisar...

Doktor Dí in da hás...

 Ps. Innilega til hamingju Geiri og Ardís!!! Koss


Loksins, loksins...

Þá erum við loksins búnir að klára þennan disk okkar í Red Motor Dog og er það búið að taka sinn tíma. Allt hefur gengið á afturfótunum síðan að upptökum lauk þannig að þetta er viss léttir...vúff

Núna er diskurinn bara að fara í fjölföldun í næstu viku og einnig verður coverið á disknum sett í prentun núna í næstu viku. Eini ókosturinn við þetta er að maður fer á hausinn við svona en það verður bara að hafa það, það verður gaman að fá þetta í hendurnar með coveri og plastað og allt Brosandi Núna getum við loksins farið að snúa okkur að öðru eins og að semja fleiri lög og SPILA Á TÓNLEIKUM!!! Loksins líka búnir að manna bandið...

Diskurinn verður til sölu einhversstaðar í búð og svo getið þið keypt hann hjá mér þegar þetta er tilbúið. Og það er eins gott að þið kaupið eintak til að styrkja mig og styðja við bakið á mér þannig að ég geti kannski keypt mér bensín og sígrettur næstu vikurnar Óákveðinn Hann mun líklegast kosta 1.200 - 1.500 kr sem er ekki neitt miðað við vinnuna og kostnaðinn sem við lögðum á okkur...

Yours truly...
David


Næsta síða »

Dassinn er...

Davíð Már Vilhjálmsson
Davíð Már Vilhjálmsson
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skoðanakönnun Dassa

Hvort veluru???

Nýjustu myndir

  • siemens
  • siemens
  • Dass'Awards 2006

Tónlist

Music Video's

  • Opeth - Ghost Reveries - Grand Conjuration*****

  • Fu Manchu - California Crossin - Squash That Fly****

  • Corrosion Of Conformity - In the Arms of God - Stone Breaker****

  • Down - Nola - Lifer***

  • Lamb Of God - As the Palaces Burn - Ruin****


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 4669

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband